Starfsmannaþjónusta ELJU
ELJA er íslensk starfsmannaþjónusta sem mætir þörfum atvinnulífsins eftir starfsfólki til lengri eða skemmri tíma. Með þjónustu sinni stuðlar ELJA að framförum í íslensku atvinnulífi.
Kostir starfsmannaþjónustu
Starfsmannaþjónusta af því tagi sem ELJA býður upp á hefur fjölmarga kosti í för með sér. Það er því ekki furða að Evrópusambandið líti á slíka starfsemi sem mikilvægan lið í því að skapa fleiri störf og draga úr atvinnuleysi.
Kostir starfsmannaþjónustu
- Oft eru fyrirtæki að leita að starfskrafti í stuttan tíma til að brúa bil sem hefur myndast af einhverjum ástæðum. Fyrirtækið vill hins vegar ekki ráða starfsmann í fast starf. Hér kemur ELJA til sögunnar og býður fyrirtækinu að kaupa til skamms tíma útselda þjónustu.
- Hitt er einnig alþekkt, að fólk sem komið er yfir miðjan aldur eigi erfitt með að fá starf við hæfi, jafnvel þótt reynsla og þekking ætti að telja nokkuð. Ef viðkomandi fær hins vegar tækifæri til að sanna sig í tímabundnu starfi á vegum ELJU er hugsanlegt að fyrirtækið ákveði að bjóða honum eða henni fastráðningu.
- Eitt af grunngildum ELJU er að ráða eingöngu hæft og gott starfsfólk, óháð kynþætti, þjóðerni, trúarbrögðum, kyni, aldri eða kynhneigð. ELJA stuðlar þannig að bættri stöðu kvenna, ungs og eldra fólks og fólks sem af einhverjum ástæðum er á jaðrinum, t.d. vegna uppruna, fötlunar eða annarra þátta sem vinna gegn atvinnuþátttöku þeirra.
- Systurfyrirtæki ELJU eru í öllum öðrum Evrópulöndum og ótalmörg í sumum löndum. Rannsóknir „eurociett“ (European Confederation of Private Employment Services) undirstrika mikilvægi einkarekinna starfsmannaþjónusta. Nýjustu tölur sýna m.a. að þær fá ýmsu áorkað á hverju ári.
- Starfsmannaþjónustur bjóða oftast aðstoð og klæðskerasaumaða ráðgjöf við mismunandi hópa, þar með talið fólk með fatlanir. Líkt og ELJA eiga flest þessara fyrirtækja gott samstarf við opinberar vinnumiðlanir og vinnumálastofnanir.
Önnur athyglisverð staðreynd er, að ánægja starfsmanna er afgerandi. Í nýlegri skýrslu sem Boston Consulting Group tók saman fyrir alþjóðasamtök starfsmannaþjónusta, ciett, kom m.a. fram að starfsmenn sem hafa starfað tímabundið fyrir starfsmannaþjónustu mæla eindregið með þjónustunni við ættingja og vini. Hlutfallið er á milli 83% og 56% ánægja. Ánægja með að hafa starfað fyrir starfsmannaþjónustu var 91% og 93% lýstu ánægju með starfið sjálft. 79% lýstu ánægju með launin. Tölur sýna einnig, að meirihluti þeirra starfsmanna sem er miðlað til skemmri tíma nær í framhaldinu fótfestu á vinnumarkaði til langframa, t.d. 59% í Svíþjóð, 60% í Austurríki og 65% í Noregi
og Frakklandi.
Ráðningarferlið
Ráðningarferlið hefst á ítarlegri þarfagreiningu með notendafyrirtækinu þar sem eftirfarandi þættir eru skilgreindir:
- Fjöldi starfsmanna sem óskað er eftir
- Tímalengd ráðningar
- Starfslýsing
- Vinnutími
- Vinnustaðurinn
- Menntun/réttindi sem þörf er fyrir
- Hæfniskröfur
- Starfsreynsla
- Annað sem kann að skipta máli
Að lokinni þarfagreiningu hefst ELJA handa við leit að starfskröftum sem uppfylla þær kröfur sem koma fram í þarfagreiningunni. Algengur tími frá því að þarfagreiningu lýkur og þar til starfsmaður kemur til starfa er 3-5 vikur.
Spurningar og svör
Jafnlaunstefna og jafnréttisáætlun
https://quality.ccq.cloud/publishDocument/63c7f05b6a51f4b324e66eb9
Athugasemdir við jafnlaunastefnu
https://incidents.ccq.cloud/simple-form/en/fuo28ZgmwZQDp7foz/63ecf4af2149090ccf5df315
Starfsfólk
Starfsmannaþjónusta
Hafa samband
Skrifstofa ELJU er opin virka daga á milli 09:00 og 16:00. Á föstudögum er opið til 15.
Hringdu í síma (+354) 4 150 140 eða sendu póst á elja@elja.is